4.flokkur samæfingar.

21.02.2012 22:44:23 / 4flokkur-KFF

Greifamót.

Sælir.
Nú fer að líða að Greifamóti hjá okkur og ég þarf að fá skráningu hverjir ætla að mæta.
Skiptir gríðarlega miklu máli að skrá sig svo ég geti séð hvort ég stilli upp einu eða tveimur liðum. Margir hafa þegar skráð sig í tölvupósti til mín en vil ég biðja þá að skrá sig hér aftur.

Eins sárvantar mig að foreldar gefi leyfi að þið svarið spurningunum hans Andra Hjörvars.

Kveðja Sigurjón E

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2012 09:40:51 / 4flokkur-KFF

Frábær frammistaða á æfingu...

Strákar.
Eftir æfinguna í gær kom ég ótrúlega glaður heim og hugsaði ég mikið í bílnum á leiðinni hvað ég er með mikið af frábærum leikmönnum í höndunum.

Hugarfarið á æfingunni í gær var eins og sönnum keppnismönnum sæmir.
Allir lögðu allt sem þeir áttu í æfinguna, allir jákvæðir og allir þeir sem voru ekki í hópnum sem ég valdi til að spila á móti Þór  vildu sýna mér að ég hafi gert vitleysu þar.

Glæsileg æfing og þið munið það sem ég sagði í gær við ykkur með að vera að bögga liðsfélagann á því að hann hafi ekki komist í hóp í æfingaleik sýnir ekki að þið eruð betri en hann heldur eruð þið greinilega eitthvað hræddir um að sá sem þið eruð að bögga gæti hugsanlega tekið stöðuna af ykkur.

Sjáumst hressir á æfingu næsta mánudag og endilega haldið ykkar striki...

Kveðja Sigurjón E


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2012 15:24:32 / 4flokkur-KFF

Þórsarar koma ekki á morgun.

Sælir allir litlu ungarnir mínir8)
Út af veðri verður ekkert af ferð okkar í Egilsstaði á morgunn og eig allir að mæta á æfingu á mánudaginn 20.feb.

Endilega látið alla vita og komum sprækir á mánudaginn.

Kveðja Sigurjón E
665-8121

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2012 21:03:47 / 4flokkur-KFF

Hópur fyrir leiki gegn Þór á Fellavelli.

Sælir strákar og afsakið að ég er ekki búinn að koma hópnum hér inn fyrr.
Það er mæting uppá Fellavelli kl 9:30 á laugardagsmorgun og verður leikið fyrst í sameiginlegu b-liði og svo í sameiginlegu a-liði á móti Þór.
Mætið vel klæddir í þeim fötum sem þið viljið spila í því við verðum bara í vestum og því ekki búningar.
  • Tristan Rey
  • Dagur Fásk
  • Marteinn Rey
  • Mikael Rey
  • Pálmi Rey
  • Ágúst Rey
  • Siggi Nesk
  • Patrekur Nesk
  • Marínó Nesk
  • Daníel Esk
  • Anton Esk
  • Haukur Nesk
  • Hafþór Nesk
  • Garðar Fásk
  • Birkir Nesk
  • Filip Nesk
Þessi hópur á svo ekki að mæta á æfingu á mánudaginn 20.feb því þá spila þeir sem ekki eru í þessum hóp á móti Hetti í okkar æfingatíma og þá er gott að geta komið aðeins fyrr til að vera búnir að hita upp.

Ef það eru einhverjar spurningar þá endilega hringið í mig.

Kveðja Sigurjón E
665-8121

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.01.2012 12:09:02 / 4flokkur-KFF

Pizzuveisla eftir æfinguna á mánudaginn...

Sælir drengir.
Eftir æfinguna á mánudaginn 30.Janúar ætlum við að fara á Café Kósý og fá okkur pizzu og hafa gaman saman aðeins fyrir utan fótboltann.
Það kostar 1300kr á pizzahlaðborðið og þið þurfið að vera með klárt far heim eftir það því að rútan verður farin.

Kveðja Sigurjón E
6658121

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.11.2011 16:36:40 / 4flokkur-KFF

Leikir við Hött á Laugardag.

Sælir drengir.

Við ætlum að spila við Hött um helgina á Fellavelli.
Leikirnir verða spilaðir 3x25mín og spilar hvort lið einn leik.
Mæting er á laugardag kl 13:15 og byrjar fyrri leikurinn kl 14:00.

Allir að kvitta til að staðfesta að þeir mæti um helgina.

Kveðja Sigurjón E

» 29 hafa sagt sína skoðun

29.10.2011 20:48:18 / 4flokkur-KFF

Tveir leikir þessa helgi...

Glæsilegur árangur okkar stráka á móti KF um helgina.
Leikið var 3x25mín og endaði leikurinn á fötudag 6-7 norðanmönnum í vil.
Glæsilegur árangur hjá okkar drengjum að skora 6 mörk en eitthvað þarf að þétta varnarleikinn.
Leikurinn á laugardag var vel spilaður hjá okkar liði spilaðar 3x25 mín og unnu strákarnir öruggan sigur 6-0 og sáu norðan menn aldrei til sólar í þessum leik.
Eins og ég hef alltaf talað um þá skipti ég í tvö jöfn lið og stóðu allir strákarnir sig með stakri príði. 
Hópurinn er gríðarlega sterkur og verða verkefnin skemtileg hjá okkur í vetur að undirbúa liðið fyrir komandi átök.

Kveðja Sigurjón E

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2011 21:10:51 / 4flokkur-KFF

Leikur á Föstudag.

Sælir drengir.
Nú er það komið á hreint að leikurinn á föstudag er kl 18:30 og er mæting kl 18:00 og leikurinn á laugardag er kl 11:00 mæting 10:30
Allir sem eiga rauðan KFF búning endilega mæta í honum.

Hópurinn sem spilar á föstudag er:

  • Mikael
  • Marri (Fyrirliði)
  • Kristján
  • Erik
  • Pálmi
  • Ágúst
  • Friðrik
  • Eyþór
  • Garðar
  • Haraldur
  • Viktor 
  • Jóhannes
  • Tristan
  • Hjalti
  • Aron
Hópurinn sem spilar á laugardag er:
  • Þorvaldur
  • Siggi (Fyrirliði)
  • Kári
  • Hjálmar
  • Filip
  • Marínó
  • Anton
  • Daníel
  • Dagur
  • Haukur
  • Hafþór
  • Patrekur
  • Gummi
  • Birkir
Kveðja Sigurjón E


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2011 21:22:47 / 4flokkur-KFF

Hópur fyrir leik á móti KF Föstudaginn 28.okt

Sælir ormar...
Eins og ég sagði við ykkur á æfingu ætla ég að skipta í tvö jöfn lið sem spila á móti KF.

Liðið sem spilar á föstudag.
Mikael
Marri
Erik
Pálmi
Ágúst
Friðrik
Eyþór
Garðar
Haraldur
Viktor
Jóhannes
Tristan
Hjalti 
Aron

Liðið sem spilar á laugardag.
Þorvaldur
Kári
Hjálmar
Filip
Marínó
Anton
Daníel
Dagur
Haukur
Hafþór
Patrekur
Gummi
Birkir

Kveðja Sigurjón E

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2011 21:11:46 / BlogCentral

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 1275